Ný ríkisstjórn

Það er augljóslega mjög slæmt að Sjálfsstæðisflokkurinn skuli taka Heilbrigðisráðuneytið. Ég sé ekki fyrir mér hvernig Samfylkingin ætlar að efna loforð sín í þeim málaflokki. Mitt gisk er að kratarnir hafi ekki þorað að taka þetta ráðuneyti af slæmri reynslu.

Næst verstu fréttirnar eru þær að Björn Bjarna sé ennþá Dómsmálaráðherra. Eina góða við það er að hann mun væntanlega hætta eftir cirka ár. Ég giska að heilsufarsástæður verði þá nefndar þó að í raun sé búið að ákveða það núna. Ég held að þetta sé afleikur hjá Sjálfsstæðisflokknum og mun ergja kjósendur hans.

Ágúst Ólafur er ekki ráðherra. Það er greinilegt að það á að ganga algjörlega framhjá honum. Það er ekki skrýtið að maður þurfi að minna sjálfan sig á að Össur sé í raun ekki varaformaður flokksins þegar hann er mikið meira áberandi. Sá fólk tala um þetta í kosningabaráttunni að það einkenndi auglýsingar Sjálfsstæðisflokks, Samfylkingar og Framsóknar að formaður og varaformaður væru alltaf saman. Ágúst Ólafur var bara gleymdur. Ég fatta samt ekki alveg skiptingu ráðuneyta, mér sýnist að Samfylking sé í raun að fá minna en Framsókn var með.

Eins slæm og kynjahlutfallið er í þingflokk Sjálfsstæðisflokks þá er það skelfilegt í ráðherraliðinu. Ein af sex? Það er bara verið að gefa konunum fingurinn. Ég sá nokkra hægri menn gagnrýna það fyrr í dag að Samfylkingin ætlaði að láta kynferði ráða ferð í ráðherravali sínu. Hið augljósa er náttúrulega að hjá Sjálfsstæðisflokknum er kynferði líka látið ráða, það er bara þannig að karlarnir fá næstum allt en konurnar mola.

Letin og framtíðin

Voðaleg leti er í gangi hérna.  Reyndar er myndin af okkur Ella svo sæt að mér finnst allt í lagi að leyfa henni að hanga efst í smá tíma.

Ég er í tímum hjá hákarlinum þessa daganna.  Ágætt en ég er ekki að læra neitt nýtt.  Terry fór greinilega vel í gegnum þetta.

Í næstu viku fer ég í sumar“vinnuna“ mína.  Ég fer semsagt að hanga í Odda að vinna að rannsókninni.  Síðan tekur við tveggja vikna sumarskóli í Danmörku. Fjör.

Margt fleira að gerast. Ég verð aðallega glaður þegar ég klára þessa önn.  Hún hefur ekki verið jafn erfið og sú síðasta en ekki nærri því jafn skemmtileg.  Tíminn hefur farið of mikið í umsóknir og svoleiðis dóterí.