Kletturinn

Það eru alltaf illkvittnar raddir sem hvísla því að tengsl séu milli Sjálfsstæðisflokksins og Vöku. Við sem þekkjum til vitum betur. Sjáið til dæmis þetta dæmi sem ég tók af heimasíðu Vöku núna í dag þar sem laganeminn Árni Helgason svarar skýrt og greinilega spurningunni um hvort hann eigi aðild að einhverjum stjórnmálaflokk.

kletturinn.jpg
Ég óska Árna annars velfarnaðar í nýju starfi og vona að það komi ekki niður á öðrum félagsstörfum hans.

Hátt fall

Ég hef glatað silfrinu á BloggGáttinni. Orðið á Götunni og Pétur Gunnarsson hafa náð öðru og þriðja sætinu. Nú ætla þessir aðilar víst að sameinast í einhvern netmiðil og þá verður kannski auðveldara fyrir litla manninn að ná í orðu. Ármann er þó augljóslega konungur bloggsins. Það væri áhugavert að vita aðsóknartölur hans.

Smá feill

Í morgun var ég loksins búinn að ná því að búa til samlokur fyrir daginn svo ég þyrfti ekki að kaupa enn einu sinni eitthvað á kaffistofunni hér í Odda. Ég var líka með flöskur af Topp svo ég þyrfti ekki að kaupa Topp hérna. Þetta er núna í poka heima. Eitthvað misfórst í planinu mínu.