Í skóla þá var ég án efa meira geek en freak. Mér var einu sinni boðið að vera freak en ég afþakkaði, það var nefnilega eiginlega nauðsynlegt að drekka og reykja.
Day: 22. ágúst, 2007
Kynjakvótar í stærra samhengi
Það er áhugavert að heyra kvart og kvein yfir því að það séu fleiri konur en karlar í nýskipuðu Jafnréttisráði. Af einhverjum ástæðum vilja gagnrýnendurnir horfa eingöngu á Jafnréttisráð í þessu sambandi í stað þess að taka tillit til þess hvernig kynjaskiptingin er almennt í nefndum og ráðum hjá ríkinu. Gæti verið að ef við myndum taka inn í dæmið ráð og nefndir á svipuðu stigi stjórnsýslunnar þá myndi koma í ljós að konur séu í minnihluta þó þær hafi meirihluta þarna? Eða er rangt hjá mér að skoða þetta í stærra samhengi?
