Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Föstudagur, 8. febrúar 2008 klukkan 15:16

Æsispennó sjónvarpsefni

Í kvöld er verið að sýna eðalmynd á RÚV, rétt á eftir Gettu Betur:

Bókavörðurinn - Leitin að spjótinu

The Librarian: Quest for the Spear

Bókavörðurinn - Leitin að spjótinu (The Librarian: Quest for the Spear) er bandarísk spennumynd frá 2004. Bókavörður reynir að endurheimta töfragrip sem stolið er af safninu þar sem hann vinnur. Við það nýtur hann aðstoðar konu sem er vel að sér í bardagaíþróttum.

Leikstjóri: Peter Winther
Aðalhlutverk: Noah Wyle, Sonya Walger, Bob Newhart, Kyle MacLachlan og Kelly Hu

Sýnt: Í kvöld 21.15

Aðalhlutverkið er eins og þið sjáið í höndum leikarans Noah Wyle sem er sjónvarpsáhorfendum að góðu kunnur úr þáttunum um Bráðavaktina. Einnig er Kyle MacLachlan áberandi en hann þekkjum við úr sjónvarpsþáttum eins og Aðþrengdar eiginkonur og Tvídrangar. Eðalskemmtun í gegn.

Annars geri ég ráð fyrir einhver gálaus safngestur hafi bara sett spjótið í vitlausa hillu. Krakkar mínir munið að láta bókaverði um að raða bókum (og vopnum) aftur í hillurnar. Týnd bók er glötuð bók!

Föstudagur, 8. febrúar 2008 klukkan 13:58

Íslam og skjalastjórn

Spenntir lesendur sem vilja lesa meira um stóra skjalastjórnardissmálið geta farið á Hugsandi. Sjálfur skammast ég mín reyndar svolítið fyrir að nenna að standa í þessu.

Þeir sem vilja meiri hasar (ef það er hægt) hafa örugglega frekar áhuga á úttekt Matta á Íslamistum með afslætti. Sjálfur hef ég ekki lesið umræddar bækur en umfjöllun Matta er allavega sú áhugaverðasta sem ég hef lesið.

Föstudagur, 8. febrúar 2008 klukkan 8:22

Úrslit Stúdentaráðskosninga

Ég verð að játa að ég gleðst aðeins yfir því hve lítill munur var í kosningunum á Vöku og Röskvu. Það hefur nefnilega svo oft verið sagt að Röskva hafi “átt” atkvæðin sem Háskólalistinn fékk. Núna er enginn Háskólalisti en þó vinnur Röskva með minni mun en í fyrra. Engin á atkvæði Háskólalistans nema helst hann sjálfur. Ef maður lítur yfir úrslitin þá er munurinn á kjörsókn í ár og í fyrra eiginlega eins og að fjöldi stúdenta sem kaus áður hafi ekki séð neinn vænlegan fulltrúa fyrir sig nú og því setið heima. Hverjir ætla að sjá um endurreisn Háskólalistans?

Annars óska ég Röskvufólki til hamingju með sigurinn og ég er spenntur að sjá þau standa við allt sem mér var lofað í símtali gærdagsins.