Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 6. mars 2008 klukkan 22:55

Kvöldið farið

Telma tók kvöldið af mér. Plataði mig í Facebook-póker. Það gekk ágætlega en ég var að reyna að tefla við Lalla um leið og lék illa af mér. En mér lýst ágætlega á stöðuna núna. Á morgun er föstudagur og ég hlakka til þegar ég stimpla mig út eftir vinnudaginn.

Fimmtudagur, 6. mars 2008 klukkan 8:05

Munaðarleysingjahælið

Við fengum boðsmiða á Munaðarleysingjahælið í gær. Þetta var ágæt hrollvekja. Fólki brá mjög reglulega og síðan öskruðu nokkrar dömur í salnum. En það er alltaf svolítið pirrandi hvað skeptíkerar fá vonda útreið í svona myndum. En þetta er skáldskápur þannig að maður ergir sig ekki um of.