
Telma var að spjalla um lífrænan mat þegar ég settist hjá henni í Háma. Ekki allir sammála henni.

Telma var að spjalla um lífrænan mat þegar ég settist hjá henni í Háma. Ekki allir sammála henni.
Kistan birti í gær og fyrradag svör við nokkrum spurningum um dóminn yfir Hannesi Hólmsteini sem send var ýmsu háskólafólki. Það virðist vera einhugur hjá þeim sem svara að rektor þurfi að bregðast einhvern veginn við.
Eftirminnilegasta svarið kom frá Vésteini Ólasyni sem taldi að stuðningsmenn Hannesar “hefðu heldur átt að skjóta saman í þyrnikórónu.”
En já, ég er sammála að það þurfi að gera eitthvað. Ég veit þó ekki hvað rétt væri að gera. Ég held að ef um væri að ræða ímyndað mál þá myndi ég segja að rétt væri að víkja kennaranum úr starfi en…. Það verður allavega áhugavert að sjá hvað rektor gerir.
Af hverju eru þeir ekki að mótmæla á bensínstöðvunum? Mig grunar að þau smyrji nú ríflega á verðið. Í gær sá ég líka einhvern vera að berjast fyrir að fá litað bensín á torfærutæki. Aldrei myndi ég styðja slíkt.
Annars þá tel ég góðar ástæður fyrir háu bensínverði og tel engar líkur á að það lækki neitt nema að fólk fari einmitt að hætta að treysta á olíu.
Síðan er alveg ljóst að vörubílar eru plága á þjóðvegum landsins og við ættum að niðurgreiða strandsiglingar til að laga það. Hvernig er annars olíunotkun í siglingum annars vegar og vörubílakeyrslu hins vegar?
Ef þið viljið ná ennþá nánara sambandi við mig er hægt að nota oligneisti@hotmail.com fyrir MSN. Ég nota ekki hotmail tölvupóst heldur nota ég tölvupóstfangið olis hjá hi.is.
Vefurinn er knúinn af WordPress | Tiga þema eftir shamsulazhar (nokkuð aðlagað þó)