Í gær fór ég í þrítugsafmæli hjá Frey frænda. Þar hitti ég líka eina frænku sem ég hef ekki hitt lengi. Við tókum okkur til og spiluðum Trivial. Fyrsta spilið vannst nokkuð auðveldlega af þremur ættuðum frá Gásum. Seinna spilið var lengra og erfiðara. Að lokum sigraði lið Stebba Páls og Auðar en hin liðin tvö voru líka komin með sex kökur. Annars var þetta bara skemmtilegt kvöld.
Day: 1. júní, 2008
Biturleikinn sko
Ef ég vildi bæla niður biturleikann yfir nýlegum lögum þá var ég að umgangast vitlaust fólk í kvöld, það var flest jafn eða meira biturt og ég.
