Fyrirlesturinn var …

eins og við mátt búast. Maðurinn gat ekki svarað einföldum spurningum og þurfti alltaf að fara að tala um eitthvað ótengt. Síðan gerðist hann ítrekað sekur um að rangfæra skoðanir þeirra sem hann var að gagnrýna. Allt mjög ódýrt og auðvelt að hrekja.

Dögun guðleysis?

Í dag talar í Háskóla Íslands maður sem fyrir nokkrum árum gaf út bók sem kallaðist sólarlag guðleysis. Eins og sem svar við þessum skrifum hans fór af stað bylgja guðleysisbóka sem vakið hafa mikla athygli. Í dag talar hann um nýja guðleysið. Það var þá væntanlega bara sólarlag gamla guðleysisins sem hann var að tala um í bók sinni. Eða kannski er nýja guðleysið bara sama gamla guðleysið sem aldrei fór þó það sé meira áberandi í dag?