Do we look like fucking bankers mr. Brown?

Eftir á að hyggja held ég að það hafi verið mistök hjá fólkinu sem skipulagði indefense að afneita hryðjuverkum. Mikið hyggilegra hefði verið að afneita bankamönnunum. Ég hefði stoltur sett mynd af mér órökuðum með húfuhár í Rebels Republica de Cork bolnum mínum með skilti sem á stæði „Do I look like a fucking banker mr. Brown?“ inn á slíka síðu.  Þetta er nefnilega kjarni málsins. Við erum engir fokkings bankamenn, við tókum enga peninga og við eigum enga peninga. Ég vil endilega senda sem mest af þessu slefandi bankapakki út til Evrópu þar sem það getur tekið ábyrgð á eigin verkum og slíkt snýst ekki um að segjast taka ábyrgð heldur að taka á sig höggið í stað þess að láta það lenda á okkur hinum.

Hinn þekkti heimur

Fyrir 2000 árum náði rómverska heimsveldið yfir meginhluta þess heims sem þá var þekktur.

Hressandi að vita að börn í dag fá ennþá þessa útgáfu af mannkynssögunni. Það kemur málinu ekkert við að einhverjir barbarar í Kína, Ameríku og á Norðurlöndum hafi þekkt sín landssvæði.

Málstaður og aðferðir eru ótengd

Málstaður mótmælenda varð ekkert verri á laugardaginn þó einhverji hafi hent eggjum. Hann breyttist bara ekki neitt. Það er aðeins of algengt að fólk rugli saman málstað og aðferðum við að koma málstað á framfæri. Hörður Torfason mætti til dæmis skilja þetta áður en hann tekur undir vitleysislega gagnrýni á þá sem köstuðu eggjum og gáfu ekki eftir gegn yfirgangi lögreglu. Eggjakast er vissulega ómarkviss mótmælaleið en hún sýnir allavega reiðina. Hún sýnir að fólkið sem kastar hefur fengið nóg (eða að það hafi gaman af því að kasta eggjum).

Yfirvöld á Íslandi hafa komist upp með að hunsa friðsöm mótmæli lengi og eru að reyna það nú. Ég held bara að það gangi ekki upp lengur. Friðarsinnar eru ekki líklegir til að byrja að fremja skemmdarverk ef ekki er hlustað á þá en fólk sem stendur frammi fyrir því að missa jafnvel allt sitt gæti gengið lengra þegar það er hunsað. Ríkisstjórnin þarf að hlusta og tala við fólkið áður en þetta gengur lengra.

Hættan á næstu mótmælum er sú að þar mæti lögreglumenn sem eru tilbúnir að slást einhverjum sem vilja slást við lögregluna. Það vantar að lögreglan hafi á sínum snærum einhverja sem geta róað fólk í þessum aðstæðum. Ég veit ekki til þess að það sé þekking á slíku innan hennar.

Evran

Miðað við hvernig margir tala get ég ekki séð annað en að þeir haldi raunverulega að aðild að ESB muni fylgja nær sjálfkrafa aðild að myntbandalaginu. Ég tel hins vegar ekki að við höfum séns á að fá Evruna næstu árin þó við séum innan Evrópusambandsins. Við erum ekkert á leiðinni að uppfylla skilyrðin. Hver veit nema að það tæki okkur meira en 10 ár að gera það. Ef Evran er raunverulegt markmið en ekki aðildin sjálf þá ættum við að taka hana einhliða upp. Nema að við gerum það að skilyrði í aðildarviðræðum að við fáum sökum neyðarástands að taka Evruna upp sem ég veit ekki hvort að sé nokkur möguleiki. En allavega finnst mér umræðan vera undarleg og ringluð.

VG um að vera í og utan ESB

Í morgun biðu mín boð um að ganga í tvo Facebook hópa. Annar mælti með aðild og hinn gegn. Bæði boðin voru frá Vinstri Grænu fólki. Ég afþakkaði bæði boðin. Varðandi Heimssýn get ég ekki komist hjá því að vantreysta félögum sem hafa svona marga hálfvita í forystuliði. Ég get á móti alls ekki gengið inn á þá línu sem virðist í gangi að við verðum að ganga í Evrópusambandið með öllum ráðum. Ef við ætlum að sækja um aðild verðum við að gera það þannig að við getum hætt við ef okkur er ekki boðinn nógu góður samningur. Ef VG samþykkir að sækja um þá þyrfti það að vera á þeirri forsendu að við munum ekki styðja samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu ef hann verður ekki nógu góður.

Ég held hins vegar að það sé mistök að láta Evrópusambandsblaður ná yfirhöndinni í stöðunni. Við þurfum fyrst og fremst vitræn stjórnvöld sem geta tekið til og markað stefnu. Þar treysti ég VG best. Ég fékk engin svör í gær þegar ég bað um tillögur að hugsanlegum meðlimum utanþingsstjórnar og það var það sem ég bjóst við. Stjórnmálakerfið er gallað en við þurfum að lifa með því.