Merkisáfangi

Ég hef aldrei áður stutt flokk sem hefur mest fylgi í skoðanakönnunum. Það er bara vírd. Förum við ekki annars núna að fá stuðning líka allra þeirra sem vilja bara styðja stærsta flokkinn?

Allt að gerast 1. des

Aldrei hefur svona mikið verið gert úr 1. des að ég muni. Allt morar í málþingum, fundum, mótmælum og svo framvegis. Þetta myndi kannski ganga upp ef þetta væri frídagur en svo er ekki. Það er eins með að ganga úr vinnunni – það er erfitt þegar maður er úti á fundi eða málþingi eða whatever.

Mogginn

Agnes Bragadóttir vill að ríkisstjórnin fái frið. Sama segir einhver danskur sérfræðingur sem Mogginn dró upp. Við erum að horfa of mikið á vandamálin ekki lausnir. Voðalega er Morgunblaðið fyrirsjáanlegt. Það hefur verið mikið um líkingamál undanfarið. Skipstjórar, slökkvilið og svo framvegis. Höfum þetta einfalt. Bjálfarnir sem eyðilögðu allt með fyrirhyggjuleysi og blindri heimskulegri hugmyndafræði eru ennþá við völd og það er stærsta vandamál augnabliksins. Siðlausu tækifærissinnarnir sem notuðu sér bjálfalega stefnu bjálfana eru nú að reyna að græða á bjálfalegum björgunaraðgerðum bjálfana. Þetta er næststærsta vandamálið.

Nenni þessu ekki, ég er böggaður.