111246869778248126

Þá er ég búinn að lesa íslenskuna einu sinni yfir. Ætli ég hafi tíma fyrir aðra umferð? Annars er ég á móti þessari fáránlegu staðhæfingu að vinstri grænir séu kommar. Þeir eru vissulega vinstri sinnaðir en það gerir það ekki að kommúnistum.
Veitið því athygli að ég er búinn að „öppdeita“ What’s my poison hornið og mæli með því að fólk kíkji á það. Þið munið sjá að ég er smekksmaður 😉
Jæja Bókastoð*! Give me what you’ve got!

*Bókastoð er kennslubók í íslensku fyrir þau ykkar sem vita það ekki.

111246866252007768

Þá er líffræðin búin og er ég bara nokkuð sáttur við það hvernig gekk. Það er alltaf jafn gaman að klausunni um hætturnar sem fylgja reykingum og telur Örnólfur (höfundurinn) þar með að slysatíðni reykingamanna sé meiri en hjá venjulegu fólki og telur hann greinilega að reykingar auki slysahættu þeirra sem reyki, sem er að sjálfsögðu þvaður.
Dæmi:
Palli:„Hvað kom fyrir þig?“
Jonni:„Ég braut á mér handlegginn.“
Palli:„Já þú verður að hætta að reykja svona mikið!“

Nú eru bara fjögur próf eftir og eru þau sem eftirfarandi:
Íslenska
Þýska
Linguam Satanis (Latína)
Enskur stíll
Og þá hellir maður sér í Snorra-Eddu á ný.

Radiohead quote dagsins:
„People are born with certain faces, like my father was born with a face that people want to hit.“ -Thom Yorke, söngvari og gítarleikari