111533097484686084

1984
Að svo skrifuðu eru nákvæmlega 484 heimsóknir í verðlaunaafhendinguna og vil ég af því tilefni minna á hinar ströngu reglugerðir sem þeim fylgja. Ekki þýðir að „reloada“ síðunni aftur og aftur því ég get séð það ef þið gerið það. Ef maður númer 1983 reloadar missir hann af verðlaununum og sá næsti fær þau. Ef þú skyldir hreppa hnossið skaltu ýta á „print screen“ hnappinn á lyklaborðinu, „peista“ í Paint og senda mér sem e-mail ásamt nafni og síma. Ef fleiri en eitt tilkall berst verður haft uppi á sannleikanum hjá teljara.is. Spennan eykst þegar nær dregur og ég er sjálfur farinn að hlakka til að sjá hver hlýtur bókina.