108991342871770581

Merkilegt þykir mér, að á forsíðu Frétta blaðsins í dag stendur að Framsókn muni fyrr slíta stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn en að samþykkja fjölmiðlalögin. Merkilegra þykir mér þó, að Netmogginn birtir þessa frétt, og á Vísi.is stendur að stjórnarsamstarfið sé traust.

Aldrei hefði það komið mér á óvart að sjá Moggann halda þveröfugu fram en Fréttablaðið, en hitt vekur þó furðu, að Fréttablaðið skuli vera ósammála sjálfu sér.