Iuvenia

Kannski ég ætti að gera eins og Tacitus og skrifa hliðstætt rit Germaníu um lifnaðarhætti unglinga. Það gæti heitið Iuvenia. Í kaflanum um talsmáta þeirra (kap. VII: Hrognamál) gæti verið sýnidæmi af deilu tveggja ímyndaðra unglinga:

Unglingur 1: Fokkastu frá mér, þarna fokkíng fokk, eða ég fokkaðér upp!
Unglingur 2: Ekki fokkíng séns, fokkíng fífliðitt. Ég á SVO eftir að fokkíng rústaðér að það er ekki fokkíng fyndið.

Nema ég er ósammála unglingi 2, þetta er alveg ótrúlega fyndið.