Það sem aldrei var bloggað

Ég var búinn að skrifa ágæta bloggfærslu um það hversu töff ég yrði eftir nokkur ár þegar ég myndi gera svolítið. En af ótta við að hugmyndinni yrði stolið ákvað ég að birta það ekki. Svo þið fáið færslu um það sem ég bloggaði ekki um, án þess að vera nokkru nær um hvað það nú var, sem ég ákvað að blogga ekki um, í staðinn fyrir færsluna sem ég bloggaði ekki. Og er það ekki alveg eins gott?