Höfuðlagsfræði

„Mannfræðirannsóknir síðustu ára, t.d. rannsóknir á hauskúpum, virðast og sýna skyldleika Íslendinga og Íranna. Draga fræðimenn þó all-ólíkar ályktanir af þeim staðreyndum, sem rannsóknir mannfræðinnar („antropologi“) leiða í ljós.“

Ágrip af forníslenzkri bókmenntasögu, Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar 1930; önnur útgáfa, þriðja prentun 1967; bókina skrifaði Sigurður Guðmundsson.

Á spássíu stendur krotað af fyrri eiganda bókarinnar: „Blóðflokkarannsóknir hafa leitt í ljós, að blóðflokkar á Íslandi skiptist mjög líkt og í Skotlandi og Írlandi, en ekki á hinum norðurlöndunum.“ Það eru þó áreiðanlegri rannsóknir.