Nútíminn er hér

SMS skilaboð dynja á símanum á ferð minni um Vogana, mér skilst að nærveru minnar sé tafarlaust óskað á MSN. Ég keyri upp að Sólheimasafni, opna tölvuna og nýti mér þráðlaust netsamband. Fáránlegur gjörningur, ég veit.

Í gær bauðst mér hins vegar að láta Breta á sextugsaldri „nudda“ mig fyrir 150 pund, eftir að ég sagði honum að fimmþúsundkall kæmi honum ekki einu sinni með leigubíl í námunda við vændiskonu. Hann semsé hækkaði verðið. Prostitute getur hvort tveggja verið karl eða kona, svo hann gat víst ekki vitað að ég væri að vísa honum á samkeppnisaðila.

Þetta tvennt er alls ótengt en það var punktur með þessu öllu saman. Ég er bara búinn að gleyma hvað það var.