Mér er spurn

Hver er munurinn á félagi gegn Pólverjum og stjórnmálaflokki gegn gyðingum? Sannast sagna þá hryggir það mig að lifa á tímum þegar reductio ad Hitlerum er hætt að vera rökvilla.

Pólverjar eru 38.5 milljónir talsins, Íslendingar eitthvað um 300.000, þannig að Pólverjar búsettir hér á landi þyrftu að hlaupa á tug- ef ekki hundraðþúsundum til að veita jafn tölfræðilega marktækt úrtak yfir Pólverja og téð Pólverjahatarafélag veitir yfir Íslendinga.

Ergó: Ef allir Pólverjar, þar með talinn Szymon Kuran blessuð sé minning hans, eru nauðgarar – þá eru allir Íslendingar skítheimsk helvítis viðrini sem hata Pólverja, ekkert nema nauðaómerkileg andskotans lítil úrhrök sem helst þyrfti að berja vitleysuna úr á gapastokki. Þannig að það er kannski ekki að furða að Hitler var hrifinn af Íslendingum?

En fyrst Pólverjar eru löghlýðnastir allra á Íslandi þá er kannski engin þörf á að örvænta strax. Mig grunar nefnilega að Íslendingar séu upp til hópa ekki jafn slefandi illa gefnir og þessar rasistakuntur í Félagi gegn Pólverjum og Íslandi fyrir Íslendinga.