Rsslisti uppfærður – Verkefnum lokið

Ég uppfærði rsslistann hér til hliðar (miðað við að þú sért á aðalsíðunni) og bætti inn fólki sem á heima þar. Ég hef alltaf tekið þann pól í hæðina að hafa ekkert endilega fólk þarna sem ég þekki heldur fólk sem ég les og hef gaman af.

Ég var ægilega hneykslaður á sjálfum mér þegar ég las yfir listann og sá að ég hafði gleymt Orminum (skammskamm Óli), Muzak gleymdi ég líka. Sigurrós og Jói eru að koma inn í fyrsta sinn, hafa dottið sífellt meira inn í blogglestur okkar Eyglóar.

Nú er ég samt viss um að ég er að gleyma einhverjum sem á heima þarna og því skulið þið ekki vera fúl þó þið séuð ekki þarna.

Nú er þeim verkefnum sem tengdust heimasíðuveseni alveg að ljúka, bara að uppfæra samsvarandi síðu á Háskólasvæðinu og þá er það komið.

Ég þurfti annars að angra Má meira áðan þegar ég fattaði að ég hafði ekki minnt hann á að Sverrir hefði dottið af Molunum líka. Glataður Óli.

Óli glataði.