Allt lofar góðu varðandi flutninga en ekkert er öruggt. Eygló var að hringja og við erum víst efst af nýnemum og það hjálpar okkur, ákveðinn hluti íbúðanna fer til nýnema. Ég hlakka svo til, en samt er ekkert öruggt. Ef þetta gæti bara komist á hreint.
En ég er veikur, að drepast í hálsinum, bæði að innan og utan. Til að drepa tímann þá er ég að horfa á That 70s Show. Red reyndi að finna smokka inni hjá Eric, það var fyndið.