Getting Even

Ég er að lesa bókina Getting Even eftir Woody Allen, hún er nokkuð góð en helsti galli hennar er sá að ég hef lesið tilvitnanir úr henni út um allt. Þannig gerist það nokkuð oft að þegar sögurnar eru að klárast þá kemur svona snilldarsetning sem nær ekki þeim krafti sem hún ætti að ná því hún hefur heyrst svo oft. Kláraði annars Love, Groucho í gær og nú er markmiðið að fá Sandman lánaðan hjá Nils svo maður hafi eitthvað að lesa.