Aftur í vinnu og væntanleg heimsókn

Jæja, ég er loksins að fara aftur í vinnuna, er næstum búinn að ná mér. Langt síðan ég hef fengið svona langdregin veikindi, ógeðslega pirrandi.

Annars vorum við að fá þær gleðifréttir í gær að Eva ætlar að koma suður á miðvikudaginn og vera yfir helgina. Fréttirnar komu á góðum tíma því það stöðvaði öll áform Eyglóar um að fara eitthvað yfir helgina.

Jæja, vinna, vinna, vinna.