Foo Fighters undirbúningur

Ég er búinn að vera að skoða hvaða lög Foo Fighters hafa verið að spila á tónleikum svo maður geti sungið almennilega með. Fer síðan að skrifa disk fyrir bílinn, finna texta á netinu og svoleiðis. Nú fer manni að hlakka til, hef ekki haft almennilegan tíma til þess. Tvær vikur til stefnu, lífið verður orðið þægilegt þá, eyði tíma mínum í að pakka og taka auðveldar kvöldvaktir.