Hitti ungfrú Rokk

Ég hitti Betu Rokk í kvöld. Skrapp nefnilega niður í bæ í Eymundsson og fór að skoða bækur, rakst á nokkrar áhugaverðar en vissi ekki hvort ég hefði pening inn á reikningnum. Fór í hraðbanka til að sjá stöðuna og eftir ítrekaðar tilraunir til að muna pinnúmerið mitt fékk ég stöðu mína á hreint. Ég sneri aftur og náði í The Science of Discworld II:The Globe.

Ég var nokkuð ánægður að enginn var að afgreiða á þriðju og annari hæð þannig að ég gat farið til hennar Betu og látið hana afgreiða mig. Beta kom líka á óvart með skarpskyggni því hún er afgreiðslumaður númer tvö eða þrjú sem hefur, á um einu og hálfu ári, tekið eftir að undirskriftin mín er ekki með sama nafni og kortið er. Hún spurði mig út í þetta og ég útskýrði í stuttu máli. En ég er samt sár yfir því að hún kannaðist ekki við mig af nafninu, við erum ekki margir Gneistarnir (nema hestarnir en ég tel þá ekki með).