Fram á nótt

Þoli ekki að hlusta á fólk syngja Fram á nótt þegar ég hef á tilfinningunni að það viti ekkert um hvað það er, þegar fólk hækkar um of á “djamma fram á nótt”.

Myndi líklega enda í persónulegri færslu ef það væru ekki svona margir að lesa þessa dagana. Kannski jafna ég mig á þessu en þegar heimsóknir á síðuna aukast þá finnst mér erfiðara að vera persónulegur. Ætti í raun ekki að vera það því þetta er þá langoftast fólk sem ég þekki ekki og á ekki eftir að hitta en samt…

Maður hefði annars haldið að þetta yrði alltaf auðvelt þegar svona langur tími er liðinn, kannski er þetta ekkert það langur tími í raun.