Maður á mann

Maður á mann er í sjónvarpinu. Sá brot úr því í síðustu viku þar sem Sigmundur var að tala við Geir H. Haarde. Sigmundur var eitthvað að tala um Fréttastofu Stöðvar 2 og ásakaði Geir því sem næst um að hafa eyðilagt trúverðugleika þeirrar stofu. Nú er ég alltaf hlynntur því að kenna Sjálfstæðismönnum um allt en þetta er bara fáránlegt. Það er ekkert Geir að kenna að Fréttastofa Stöðvar 2 hafa misst trúverðugleikann, það er einfaldlega fréttastjóranum og stjórnarformanninum að kenna. Geir var hins vegar heppinn með þetta mál að það kæfði alla umræðu um upphaflegu fréttina, laxveiðina í boði viðskiptavina Búnaðarbankans.

Nú er Jóhannes í Bónus í Manni á Mann og ég segi náttúrulega ekki neitt vont um hann.