Þakkaræða óþokka

Jæja, best að fresta þessu ekki lengur þó ég sé latur. Ég þakka góð viðbrögð við Vefverðlaunum Gneistans 2003. Sigurvegarar og aðrir fá þakkir fyrir hlý orð. Reyndar hef ég ekki fengið viðbrögð frá Kettinum né Stefáni Pálssyni en Viðar er svo sem ekki mikið að skrifa þessa dagana.

Verðlaunin fengu meiri umferð í gær en daginn sem þau voru tilkynnt og augljóslega er það Fréttum að þakka.

Síðan verð ég að þakka Badabing fyrir að sýna þessu framtaki mínu þá athygli sem það virkilega verðskuldar 😉