All Dead, All Dead

Var að skoða Sjónvarp.is og kíkti á listann yfir afmælisbörnin sem var svona:
Phil Hartman 55
Linda McCartney 62
Jim Henson 67
Anthony Newley 72
Sheila MacRae 79
Ég kannast við þrjú á þessum lista og þau eiga eitt sameiginlegt, þau eru dáin. Ég ákvað að kíkja hvernig staðan væri með hin tvö og kemur þá í ljós að annað þeirra er líka dáið. Eftir stendur afmælisdagalisti þar sem aðeins er einn á lífi og það er aldursforetinn, hún Sheila MacRae. Klöppum fyrir Sheilu því það er greinilega árangur að fæðast þennan dag og lifa af.