Vonbrigðin hafa bent á tekjumöguleika og ég hef ákveðið að fylgja í kjölfar hans. Til sölu er eitt atkvæði í kosningum til stjórnar Heimdalls, fyrir 10.000 kall skal ég ganga í félagið og kjósa hvern sem er. Ég er líka nokkuð viss um að Eygló er til í að gera það líka þannig að hér eru komin tvö atkvæði sem við skulum verðleggja á 18.000 saman. Þetta er fjögur þúsund krónum undir gangverði.