Frétt á mbl.is um dóna í Reykjanesbæ:
“um klukkan 4:30 um nóttina […] orðið þess áskynja að einhver var með vídeómyndavél utan við eldhúsgluggann og beindi vélinni inn um gluggann[…].
Fram kemur í dagbók lögreglunnar í Keflavík að maðurinn sá ekki hver var þarna á ferð en hann hafi verið í köflóttri skyrtu.”
Um leið dettur mér í hug hann Danni, les þetta fyrir Eygló sem datt líka í hug Danni. Eygló benti líka á að Danni hafi farið heim til Keflavíkur um helgina og “horft á video”. Málið leyst.