Skúffukaka og Appelsín

Eygló náði að snúsa án erfiðis í 45 mínútur í morgun án þess að það næði að vekja mig. Ég ætlaði að skella í skál af Coco Pops en áttaði mig á að ég hefði gleymt síðustu mjólkurfernunni á borðinu í nótt. Morgunmaturinn minn sem var étinn á fimm mínútum samanstóð af skúffuköku og Egils Appelsíni. Alltaf gaman.