Bannað að flauta á númer 1

Var að keyra í gær þrönga götu í gær og fyrir framan mig var bíll að stöðva alla umferð útúr götunni. Það var verið að bíða eftir einhverjum og þegar bílstjórinn kom loksins aftur þá var hann heillengi að koma sér af stað. Ég ætlaði að fara að flauta en Eygló bannaði mér það. Ég held að hún hafi bannað mér af því bílnúmerið var einfaldlega “1”, forsetinn semsagt. Ég hefði átt að flauta. Kallinn leit annars út fyrir að vera afskaplega lítill þarna í aftursætinu.