Ekki sama hr vinstri og séra hægri

Þetta mál hjá RÚV varðandi Spegilinn er afskaplega bjánalegt, Markús Örn er alveg miður sín yfir því að það skuli vera vinstri sjónarhorn á einum þætti í útvarpinu en er líklega alveg sama þó allir sjái að hægrimennskan ráði ríkjum í Kastljósinu og Sjónvarpsfréttum. Hvort ætli fleiri hlusti á Spegilinn eða horfi á Kastljós og Sjónvarpsfréttir? Náungi sem er ráðinn að miklu leyti vegna þess að hann er hliðhollur ákveðnum stjórnmálaflokki (sem ræður líka starfsmenn eftir því hvaða skoaðanir þeir hafa) þolir ekki smá hóp uppreisnarmanna. Helvítis vælandi gerpi.