Tíma vel eytt

Ég ætlaði að læra undir Aðferðafræðipróf í kvöld (sem gildir í raun ekki neitt) en einhvern veginn endaði ég með því að skrifa tvær greinar fyrir Vantrúna, þær eiga eftir að birtast seinna. Reyndar er akkúrat núna grein eftir mig efst þar en satt best að segja var hún svona „rainy-day“ grein, sem ég birti ekki um leið og ég kláraði að skrifa vegna þess að náði ekki að koma öllu fullkomlega útúr mér sem ég ætlaði að segja. Mér var reyndar sagt að hún væri fín en ég lít samt á hana sem hálfgerðan bastarð. Ef hún er fín þá er álit mitt sprottið annað hvort af því að ég vildi segja meira betur eða þá af því ég veit ekkert hvernig ég á að dæma eigin verk.

Hvað um það. Ég setti í eina vél í kvöld og steingleymdi því þar til um miðnætti, það var síðan búið að taka úr vélinni og einhver búinn að láta í nýja þegar ég kom niður, hugsanlega í fyrsta skipti í sögunni sem einhver er að þvo þvott eftir miðnætti á föstudagskvöldi á stúdentagörðunum (ókei líklega hefur það gerst áður en við skulum hafa það sem fyndnara reynist í þessu máli (en ég veit náttúrulega ekkert hvort þetta var fyndið hjá mér)).

Í dag langaði mig ægilega að búa til pönnukökur en Eygló var ekki í stuði til að borða þær þannig að ég sleppti því. Ég sagði Heiðu síðan frá þessu og hún var ákaflega hneyksluð á Eygló að afþakka þetta gullna tilboð.

Ritgerðin sem ég á að skila á mánudag gengur annars ágætlega, vantar svona 700 orð til að klára og það ætti alveg að hafast í einu stuði. Annars þá átti ég í dag að læra á heimildarskrár (sem hefði verið þægilegt en ekki alveg nauðsynlegt að fara í áður en skila ritgerðinni) í Vinnulaginu en kennarinn mætti ekki og við fórum eftir kortér. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem hún er of sein, reyndar er ég ekki viss um að hún hafi nokkurn tíman mætt á réttum tíma. Hún sendi afsökunarbréf seinna um daginn þar sem hún talaði um að hún hefði reynt að hringja í fólk til að segja þeim að tíminn félli niður. Af hverju sendi hún ekki tölvupóst? Það hefði allavega dugað mér og Eygló. Pirrandi. Ég fer á skorarfund á mánudaginn og mál þessa kennara á örugglega eftir að koma upp.

One thought on “Tíma vel eytt”

Lokað er á athugasemdir.