Ég er búinn í þessu hlutaprófi í Aðferðafræði og held að mér hafi gengið vel. Mjög feginn þó ég hafi verið búinn að reikna með allavega yfir fimm þá er gott að vita að þetta ætti ekki að vera neitt tæpt. Hef í raun enga hugmynd um hvaða einkunn ég mun fá en ég mjög sáttur miðað við undirbúningurinn. Undirbúningur minn fyrir þetta próf var klukkutími á fimmtudagskvöld sem fór í upprifjun á tölfræði og síðan svona einn og hálfur klukkutími í morgun þar sem ég las glósurnar/glærurnar hennar Eyglóar og punktaði aðalatriðin hjá mér.
Það mátti hafa með sér öll þau pappírsgögn sem maður vildi en ég fór sjálfur aðeins með þá punkta sem ég gerði í morgun (mjög gagnlegir) og próflausnina frá því í fyrra (hún dugði mér til að sannreyna eitt svarið mitt en ég var nú viss um það fyrirfram). Ég var í stofu með Palla og Óla Njál og við spjölluðum aðeins saman fyrir prfófið. Palli sagði að ég væri töffari fyrir það hvað ég var með lítið af drasli með mér og ég fer ekki að mótmæla því.
Ég fékk áfall þegar ég skoðaði prófið fyrst en fattaði síðan að það áfall var án ástæðu. Ég hef enga námstækni, ég sá það í þessu prófi, fólk var að skrifa hjá sér punkta útum allt á kerfisbundinn hátt á meðan ég treysti á minnið (tvítjékkaði samt allt eftir á). Ég er ennþá með sama vasareikni og ég keypti í áttunda bekk, hann er illa farinn en virkar. Ég var búinn með prófið um tvöleytið en beið af gömlum vana eftir því að einhver færi á undan mér. Ég tek fram að ég fór út á undan Njalla og Palla þannig að einkunn mín ætti allavega að vera best miðað við próftíma. Mér fannst ægilega fyndið að sjá farsímasafnið við kennaraborðið á leiðinni út, af öllum stærðum og gerðum, minn var heima.
Eygló er ekki komin heim en hún hefur bækur til að athuga allar spurningar sem vafi er á. Eygló kom akúrat þarna og það er nokkur svör sem aðskilja okkur ef allt fer á allra versta veg hjá mér eða henni þá fellur annað hvort okkur en líklegra finnst mér að við náum bæði einhverju á bilinu 6 – 7 sem er ágæt miðað við undirbúning.
Annars þá var mjög skondið þegar ég var að fara í prófið að þá rakst ég á fyrrverandi bekkjarsystur mína hana Hildi Báru sem ég hef ekki hitt í svona þrjú ár, sem er ekki stórkostlega mikil tilviljun enda býr hún á Stúdentagörðum, það sem gerði þetta að merkilegri tilviljun er að í gærkvöldi skrifaði ég í gestabók sonar hennar á Barnalandi. Hún er annars í japönsku núna sem þýðir að hún er mjög líklega í tímum hjá Sverri.