Enn um snilldarlegt orðalag

Það var verið að fjalla um John F. Kennedy í fréttunum á RÚV. Það var talað um að hann hefði verið gengt herþjónustu „…og barðist í Seinni Heimsstyrjöldinni til ársins 1945“. Snilld alveg, við vitum semsagt að JFK var ekki einsog japönsku hermennirnir sem voru að finnast á ýmsum Kyrrahafseyjum seinni hluta síðustu aldar heldur hætti hann að berjast þegar stríðinu lauk.

Síðan fékk Björn Bjarnason tækifæri til að tala um JFK og merkilegt nokk þá dró hann Kalda Stríðið og Sovétríkin inn í þetta. Hverjum hefði dottið það í hug?