Ég ákvað að vera óvenju duglegur og skellti inn myndum frá deginum sem ég eyddi með Tý. Fyrst eru það myndir úr viðtölum og af tónleikunum en síðan pönnukökuboðið. Ég vandaði mig aðeins við tónleikamyndirnar til að gera þær sem flottastar.

Kári og Gunnar fengu báðir laufabrauð í fyrsta skipti. 
Sigrid og Heri höfðu hins vegar bæði fengið laufabrauð áður enda Sigrid hálfíslensk. 
Gunnar þurfti að brugga kaffið sjálfur en minntist á að allt væri framför frá Rússlandi þar
sem kaffið var sett beint oní bolla og síðan yfir í annan bolla til að losna við mesta jukkið.

Gunnar klárar kaffið sitt á meðan Heri áritar diska (og gerir X á myndirnar af fyrrverandi meðlimum hljómsveitarinnar).
