Banna geðlækningar?

Tom Cruise vill láta banna geðlækningar, telur þær tímasóun, vill að fólk fari bara út að ganga í staðinn. Hálfviti. Ég get nú giskað hvaðan þessi vitleysa er upprunin því Tom er meðlimur í heilaþvottastöðinni Scientology. Ef maður er að tala um að banna eitthvað þá væri Scientology hátt á listanum, auðvitað eru trúarbrögð rugl og flest þeirra að einhverju leyti hættuleg en þessi heilaþvottur sem er stundaður þarna er með því versta sem ég veit um (sem er ekki þegar bannað). En ég vill ekki banna trúarbrögð, ég vill bara afhjúpa þau.