Ég hef svo fáránlega gaman af Survivor. Ég horfði á fyrsta þátt All-Stars á mánudaginn. Það eru nokkrir þarna sem eru í uppáhaldi hjá mér. Rupert er vissulega flottur. Lex er ægilega skemmtilegur og weird, held hugsanlega meira með honum heldur Rupert. Ég var í fyrsta sinn að sjá Richard Hatch og ég vill allavega fá hann áfram í þáttunum, það er ægilega bjánalegt að typpið hans skuli endalaust vera blörrað. Sorglegast er reyndar að Jon skuli ekki vera þarna, kannski hann komi inn sem óvæntur gestur.
En ég skrifaði annars grein á Vantrú sem leiðir út frá atriði í Survivor 2. Greinin heitir Horfir guð á Survivor? og er hugsanlega skrifuð í hæðnislegum tón.
Ég hef víst séð Afríkuseríuna, Lex var svo flottur þar, hótandi að skera fólk á háls.
Blörrið á Richard minnir mig dálítið á þegar Jon var að blóta og annað hvort orð var fellt út. Segir manni dálítið um bandarískt sjónvarp og þau vandamál sem svona þættir geta skapað í menningu sem hefur lengi reynt að halda venjulegu fólki frá besta sýningartíma.
Lex? Hættu nú alveg. Þú hefur greinilega ekki séð Afríkuþáttinn. Og auðvitað horfir Guð á Survivor, jafnvel þó hann sé ekki til …