Það er einkar hugulsamt af Múrnum að birta grein sem ber titilinn Ammæli daginn sem ég á afmæli. Ef Stefán Pálsson vill skúffuköku þá má hann alveg líta við á laugardaginn, ég hef reyndar ekki tekið ákvörðun um hvort að það verður smarties ofan á henni.
Það er nærri klukkutími síðan ég varð 25 ára. Ég er vissulega eldri og vitrari með hverri mínútu sem líður, gleði mín yfir þessu er algjör.
Ég hélt ég væri gamall þegar ég varð tvítugur, eftir á þá sé ég að ég var í raun ekki óánægður með aldurinn heldur stöðu mína í lífinu, í dag er ég hins vegar ánægður með stöðu mína þannig að aldurinn er bara skemmtilegur.
Ég fékk box með fjórum Marxbræðramyndum frá Eygló, skemmtilegt safn og flott uppsett. Þetta eru myndirnar Horse Feathers, Animal Crackers, Duck Soup og Monkey Business. Þær tvær síðastnefndu eru í sérstöku uppáhaldi hjá mér ásamt A Night at the Opera. Þetta eru myndirnar sem Zeppo leikur með þeim, þær sem voru gerðar áður en þeir fóru yfir til MGM, af einhverjum ástæðum er Cocoanuts ekki með í kassanum. Ég fékk líka Mr & Mrs frá Eygló.
Í tilefni afmælis míns þá er frábær grein eftir mig á Vantrú sem heitir Horfir guð á Survivor? – Kíkið á hana, ég tel hana afsanna tilvist guðs fyrir fullt og allt.