Sería 4 af Survivor

Survivor 4 er án efa leiðinlegasta serían sem ég hef horft á. Skemmtilegasti karakterinn var líklega Rob sem er núna í All-Stars, með hreiminn og allt. Leiðinlegustu karakterarnir komust á leiðarenda. Hræðilegar, hræðilegar. „Við erum svo góðar af því við erum kristnar, úpps, rýtingurinn minn er fastur í bakinu þínu.“
Sean var örlítið skárri en þær af því hann var svo skemmtilega geðveikur. Þegar hann þurfti að erfiða einsog allir hinir þá var hann í hlutverki þrælsins.

Dómarinn var hundleiðinlegur. Kom með bandaríska fánann af því hann var svo mikill föðurlandsvinur. Texasbúinn Colby í annari seríu kom með fána Texas en ég held að hann hafi gert það miklu frekar af stríðnislegum hroka (einsog íbúar ákveðins sveitarfélags á Íslandi). Dómarinn var einlægur í þeirri skoðun sinni að Bandaríkin væru best að maður gæti ælt. Dómarinn lét líka hvítu kristnu stelpuna með asnalega nafnið plata sig.

Kathy sem var í þriðja sæti var hugsanlega næstbest, samt klúðraði hún góðri stöðu þegar fimm voru eftir.

Rob „hershöfðinginn“ var þannig séð fínn, svoltið heilalaus en hafði samt vit á því að hafa John fyrir framan sig.

John var bjáni, hann setti sjálfan sig upp sem skotmark og hefði aldrei getað klárað.

Hinir keppendurnir voru ekki nægilega spennandi til að vera nefndir.

Nú er verið að lesa síðasta atkvæðið og það svarta kristna konan með undarlega nafnið sem vann, hún hrundi vissulega strax í gólfið og hefur án efa tilbeðið guð sinn sem horfir náttúrulega á Survivor.