Afmælisveisludagur

Ég hef skrifað í dagbókina á hverjum degi síðan í september, þegar ég flutti þá duttu dagar út. Núna datt laugardagurinn út af því ég var of upptekinn til að skrifa.

Dagurinn byrjaði á því að ég bakaði skúffuköku, ég þurfti síðan að fara út í búð og kaupa hráefni í meiri bakstur. Ég gerði næst muffins. Þegar þær voru að verða til þá byrjaði ég á pönnukökunum fyrir fyrstu gestina sem komu klukkan þrjú. Það voru Helga, Gummi, Sóley hans Guðmars, Árný, Hjörvar, Hrefna og Una. Við Hjörvar spáðum svona aðeins í því hvort við ættum ekki að reyna að bjarga menningarverðmætum frá eyðileggingu, það verður að skoðast í framtíðinni, líklega er sumarið samt best fallið til þess.

Ég fékk Sögu Daganna frá Helgu og Gumma en Millers Crossing frá Árnýju og Hjörvari. Hrefna rétti mér pakkann og sagði mér að þetta væri bíómynd (man ekki hvaða orð hún notaði). Sóley útskýrði fyrir litlu frænku sinni að það ætti ekki að segja svona frá. Ég var einmitt að syrgja að ég ætti ekki Sögu Daganna þegar ég var að spá í hvers vegna haldið væri upp á Kyndilmesssu þann 2. febrúar. Þetta er sko hreinsunarhátíð Maríu, með þessu fékk ég útskýringar frá Eygló sem ég þurfti ekki á að halda. Millers Crossing verður notuð á Cohen bræðra þemakvöldi í kvikmyndaklúbbnum einhvern tíman, horfði reyndar síðast á hana í janúar en hún þolir vel að maður horfi oft á hana.

Eftir að fyrstu gestirnir voru farnir þá byrjaði ég að baka meira fyrir næstu gesti. Ég hafði ætlað að baka snúða og köku sem Hafdís lét mig hafa uppskrift að en ég hætti við það enda er erfitt að gera tilraunir þegar tíminn er skammur. Eygló hafði fyrr um daginn hrætt mig um að ég væri ekki að baka nóg þannig að ég tvöfaldaði snúðauppskriftina. Ég held að klukkan hafi verið svona tuttugu mínútur í átta þegar kremið var komið á skúffukökuna, held að frostingur hafi aldrei heppnast svona vel hjá mér, yndislegur alveg.

Gestirnir byrjuðu að koma rétt eftir átta og síðustu dáltið eftir níu. Bræðurnir Helgi og Siggi gáfu mér See no Evil, Hear no Evil með Wilder og Pryor, ég er ennþá að reyna að rifja upp hvort hún sé góð, man það bara ekki. Svenni og Hrönn gáfu mér Tootsie. Heiða, Eva og Hildur gáfu okkur Eygló saman (hún á afmæli í næsta mánuði) Mr & Mrs sem er óheppilegt þar sem Eygló gaf mér það á miðvikudaginn. Bókasafnsfræðinördar sameinuðust um súkkulaðiuppskriftabók (sem ég ætti að fara að skoða á eftir) og Roxanne. Siggi gaf mér Hringinn Eina (kannski ekki alveg eina). Ef ég gleymi einhverju þá er það vegna þreytu. Reyndar þá held ég að ég hafi litið út fyrir að vera afar óspenntur fyrir öllum gjöfum sem ég fékk í dag þar sem ég var alveg á fullu og þegar fólk gaf mér gjafir þá var aðalhugsunin hjá mér hvað ég var glaður að vera sestur niður.

Dr. Gunni kom með góða afmælisgjöf í Popppunkti með því að spyrja um Queen, ég var viss um svarið þegar sagt var að lagið sem um var spurt væri á sömu plötu og Who Needs You [pása meðan Who Needs You er látið í]. Egill Helgason var annars afskaplega góður í þessari keppni, ný virðing fyrir manninum. Skondið annars að hafa Loga Bergman sem keppanda.

Eftir Popppunkt var farið að spila Party & co. Ég ákvað liðin en þau lágu reyndar frekar ljós fyrir þegar kom í ljós hverjir áttu að spila. Akureyringar (ég, Sigurður Arnar og Helgi), Vopnfirðingar eða Ljóskur (Eva, Heiða, Hildur), Bókasafnsfræðinörd (Danni, Halli, Nils og Hjördís) og síðan Zoëgar (Eygló, Svenni og Hrönn (reyndar engin af þeim alvöru Zoëga með ættarnafn og Hrönn tengist bara í gegnum Svenna)). Ég var ánægðastur þegar ég fékk Esjuna og eitt af bannorðunum var fjall en af einhverjum ástæðum mátti segja hóll sem er mun betri lýsing, Akureyringar náðu því vissulega. Síðan kom upp undarleg aðstaða þar sem Ljóskurnar máttu í raun ekki hreyfa kassann sinn. Zoëgarnir notuðu afar umdeildanlegar aðferðir í spilinu og unnu að lokum.

Eftir Party & co byrjaði að fækka þar til við vorum orðin sex sem passar vel í að spila Mr & Mrs. Ég og Siggi spiluðum saman og vorum afar góðir, klúðruðum yfirleitt bara spurningum þar sem svarið var einfaldlega óljóst (náðum eiginlega alltaf 2 af 3 réttum og fengum aldrei bónus). Eygló og Halli voru neðst, stóðu sig sæmilega en Hildur og Heiða rúlluðu þessu upp enda vinkonur og frænkur.

Við Siggi og Halli enduðum kvöldið síðan á að horfa á Woody Allen myndina Anything Else eftir að aðrir voru farnir, Eygló byrjaði reyndar á myndinni en gafst upp. Mjög fyndin mynd, margar klassískar línur: Let me tell you, I am of the Hebrew persuasion, but that guy who handles you is a member of one of the lost tribes of Israel that should have remained lost.
Og þá er dagurinn búinn, gaman var það en ég baka minna næst enda sendi ég bæði Halla og Helga með vistir. Það er afgangur af kökunni ef einhver vill líta á morgun.