Nú er í gangi verðlaunasamkeppni þar sem á að búa til nafn á þotur IcelandExpress, mér dettur ekkert í hug en Raskatið er þarna með ágætar tillögur.
Ég var hins vegar með frábæra tillögu fyrir náttúrufræðihúsið sem var ekki samþykkt, sú tillaga var Gollurshús. En af einhverjum ástæðum vann ég ekki og hið ákaflega ófrumlega nafn Askja var samþykkt. Ég er á því að ef það hefði átt að nota nafn á íslensku náttúrufyrirbrigði þá hefðu Víti verið miklu skemmtilegra val. Síðan var einhver með tillöguna Mýrin sem er miklu betra en Askja.