Eygló skipti yfir á PoppTíví áðan og við lentum á stórundarlegum þætti. Hann byrjaði á því að nokkrar stelpur fóru saman í Bláa Lónið, það var sýnt í slómó þegar brjóstin þeirra skoppuðu upp og niður þegar þeir komu uppúr Lóninu. Einnig var sýnt þegar stelpurnar báru leðju á hver aðra. Þetta var hápunktur þáttarins.
Næsta atriði var drykkja á bílaplaninu þar sem þær sóðuðu aðeins út og átu Twix.
Þær fóru síðan á Hard Rock þar sem myndavélinni var beint að brjóstaskoru aðalstelpunnar.
Farið var í Kareokesöng og síðan fóru þær að horfa á exið hennar Hildar vinna Kiss Hnakkakeppnina.
Það vantaði töluvert í að stígandinn í þessum þætti væri réttur, maður byrjar ekki að láta út trompið.
Ég skil engan veginn hvernig þessar stelpur fengu sig út í þetta, ég vona þær hafi haft gaman af þessu. Um leið og ég skrifaði þetta sagði ein stúlkan að þetta hefði verið einn besti dagur í lífi hennar. Úff, kannski ég ætti ekki að vera að dæma stelpurnar. Exið hennar Hildar í viðtali, vei.