Fortíðin bítur menn í Survivor

Survivor var ágætur í kvöld, Colby kvaddi og það var gott. Lex kominn í oddaaðstöðu og þarf því að passa sig.

Það sem réði úrslitum kvöldsins var fortíðin. Augljóslega kaus Jerri Colby út vegna svikana í Ástralíu en ég held að Lex hafi líka verið að hefna, Ethan sagði hitt og þetta um Lex við myndavélarnar. Lex hefur varla gleymt því og honum líður örugglega nokkuð vel með að hafa einangrað Ehtan. Ethan er líka leiðinlegur náungi, óspennandi, er sífellt að biðjast afsökunnar þegar eitthvað mistekst hjá honum. Vælari.