Alveg óvart?

John Kerry komst í fréttirnar um daginn fyrir að kalla Repúblikana lygamerði eða eitthvað álíka, það gerðist víst þannig að hann vissi ekki af því að það væri hljóðnemi í gangi bak við hann. Alveg óvart?
Í The West Wing kom það fyrir að forsetinn kallaði andstæðing sinn óbeint heimskan við sjónvarpsfréttamann þegar hann hélt að engin upptaka væri í gangi. Eða hvað? Það kom í ljós í lok þáttarins að forsetinn áttaði sig á því að upptakan væri í gangi og þetta var til þess gert að koma af stað umræðu um greind andstæðings síns.

Horfir John Kerry á The West Wing?