Kristján kóngur tekinn

Ég var að keyra niðrí bæ í dag og sá miklar framkvæmdir við Stjórnarráðið, kaðall kominn utan um Kristján kóng og risatæki tilbúið að hífa hann á loft. Sjónvarpsmenn voru að taka þetta upp og ég var nokkuð fljótur að átta mig á að hér væri um að ræða aprílgabb Sjónvarpsins. Davíð var ágætlega fyndinn í þessu en hann er ekki nægilega góður í að leika sjálfan sig, það vantaði brjálæðisglottið.