Ég hef verið veikur í svona eina og hálfa viku, síðustu daga hef ég verið að versna þannig að í kvöld endaði ég á Læknavaktinni á Kópavogi. Á biðstofunni (innri biðstofunni) var hægt að lesa tvö blöð með eldgömlum viðtölum við hana Jóhönnu Vilhjálmsdóttur þar sem hún var að tala um hvað hún væri nú hrifin af skottulækningum. Ekkert svoleiðis kjaftæði handa mér, ég vill fá menntaða vísindamenn sem nota aðferðir sem virka.
Það tók lækninn ekki langan tíma að komast að því hvað var að hrjá mig, bronkítis. Hann lét mig hafa lyfseðil fyrir sýklalyfi og astmalyfi, alltaf kostur að fá lyf sem hafa verið vísindalega prófuð en ekki brugguð í potti hjá einhverjum nöttara.
Læknirinn talaði um að þessi tegund bronkítis væri frekar nýlega farin að ganga hérna og mig grunar að það gæti tengst þeim Bustarfellssystrum. Þær komu til landsins frá Evrópu með bronkítis í lok júní. Þetta er semsagt allt Evu og Heiðu að kenna.