Það er einhver náungi sem hefur búið til eitthvað kaðlajógakerfi að þvæla í Kastljósinu. Hann hefur meðal annars þá kenningu að þegar þú borðar þá sértu að næra það hugarástand sem þú ert í, þannig að ef þú borðar þegar þú ert óttasleginn þá ertu að næra óttann. Kjaftæði. Ef þetta væri satt þá myndi maður standa upp frá máltíðum í sama ástandi og maður var í þegar sest var niður til að borða, það passar ekki. Ef þú borðar þegar þú ert pirraður þá ertu ekki endilega jafn pirraður eða pirraðri þegar þú ert búinn að nærast. Þetta er bara rugl.
Ég var svangur þegar ég settist niður að borða og er núna saddur, ég var ekki að næra svengdina, svengdin varð ekki öflugri.
Sniðugt að plokka peninga af fólki.
Það er fyndið að sjá náungann markaðssetja spottaverkið eins og heildarlausn og sjá hann svo sjálfan í líkamsræktinni í Kópavogi á hverjum morgni.
Jamm, þessi gaur var með alla bullfrasana á útopnu. „Rýmd öndunar er rýmd lífs“ var einn þeirra (man ekki hvort hann orðaði það nákvæmlega svona).
Þetta er dæmigerður upprennandi költleiðtogi. Ætlar sér að græða á einhverju kaðladóti með endalausu þvaðri um mikilvægi kviðarins, miðju mannslíkamans, og sér örugglega fram á að fá helling að ríða út á þetta ofan í kaupið.
Einhvern tímann þegar ég var að lesa um þetta kaðlakerfi sá ég hvað þetta var fáránlega dýrt.
20 þúsund kall fyrir nokkra tíma.
Kannski ég ætti að taka Múllers æfingarnar og reyna að gera þær hip og kúl.
Að vísu má segja, þessum manni til málsbóta, að það er til hlutur sem er að tröstespísa til dæmis. Ég er rosalegur tröstespiser. Þegar mér líður illa bý ég mér til burritos og drekk kynstrin öll af appelsíni. Þarna er um að ræða ákveðið ritúal og segja má að ég verðlauni vanlíðanina með uppáhalds ruslmatnum mínum.
Annars er svona kaðladæmi algjört rugl… 🙂