Nú ætla þeir að loka Njarðargötunni (frá Vatnsmýrarvegi að Sturlugötu) í rétt rúman mánuð, mikið er ég glaður að ég þarf ekki lengur að keyra í vinnu á hverjum degi. Íbúum er bent á að nota Suðurgötu og Hringbraut í staðinn, hvað halda þeir að hringtorgið þarna þoli mikla umferð? Um daginn var ég stopp í þessu helvítis hringtorgi, umferðin bara hreyfðist ekki. Þeir hafa svosem verið að einbeita sér að því að gera mér aksturinn erfiðari í sumar, einn góðan veðurdag þá lokuðu þeir Vatnsmýrarvegi án viðvörunar, það gerði það að verkum að ég var 25 mínútur á leið úr vinnunni í staðinn fyrir 15 mínútur. Maður hefur það sterklega á tilfinningunni að þeir séu að þessu af meira kappi en forsjá (man ekki eftir að hafa notað þetta orðtak í setningu áður).
Ætli þeir verði allavega búnir að opna báðar akreinarnar á Hringbraut í staðinn? Ef ekki þá fer þetta allt til helvítis.
Háskólanemar eru síðan á ferðinni þarna allan daginn sem gerir þetta erfiðara, sífellt að nota gönguljósin sem eru þarna hjá Bóksölunni og líka öll gönguljósin á Suðurgötunni. Þetta verður ekki skemmtilegur mánuður.